Það er einfalt. Sendu okkur tölvupóst eða DM á Instagram með upplýsingum um viðburðinn þinn.
- Dagsetning
- Staðsetning
- Fjöldi gesta
Við svörum alltaf innan 24klst og gefum þér sérsniðið tilboð.
Við mælum með að bóka að minnsta kosti nokkrum vikum fram í tímann. Vinsælar dagsetningar og helgar fyllast fljótt — sérstaklega yfir sumarið og hátíðarnar. Flestar bókanir berast 3–9 mánuðum fyrirfram.
Bókanir á síðustu stundu? Stundum - Ef við eigum lausan tíma. Sendu okkur skilaboð og við sjáum hvað við getum gert.
Já. Til að tryggja dagsetninguna þína þurfum við staðfestingargjald þegar bókun er staðfest. Eftirstöðvarnar eru venjulega greiddar stuttu eftir viðburðinn.
Við tökum aðallega bókanir fyrir hópa 30 manns eða fleiri.
Minni hópur? Sendu okkur skilaboð og við sjáum hvað við getum gert.
Það er allt innifalið í þjónustunni okkar sem við kemur kokteilgerðinni en það er meðal annars:
- Faglegir kokteilbarþjónar
- Ferðabarinn
- Glös
- Klakar
- Áfengi
- Öll fersk hráefni
- Skraut, rör o.s.frv. á kokteilana
- Öll undirbúnings vinna
- Uppsetning og þrif að lokum
Við sjáum um allt tengt kokteilunum svo þú þarft bara að bóka og segja okkur hvar og hvenær. Við sjáum um rest!
Já — við komum með allt sem þarf til halda geggjað kokteilboð. Það felur í sér færanlegan bar, glös, áhöld, klakar, hráefni og alla undirbúningsvinnu. Við þurfum bara lítið svæði til að stilla okkur upp.
Það fer eftir stærð viðburðarins. Sem almennt viðmið:
- 1 barþjónn fyrir allt að um 30 gesti
- 2 barþjónar fyrir allt að 150 gesti
Við mælum með réttri uppsetningu til að halda drykkjunum flæðandi allt kvöldið.
Venjulega eru 2-3 metrar í fínu lagi til þess að við getum stillt upp ferðabarnum okkar en það fer allt eftir stærð viðburðarins. Ef plássið er takmarkað reynum við okkar allra besta að vinna með plássið sem við höfum.
Já. Við sjáum um fullan frágang á glösum og barnum í lok viðburðarins og skiljum staðinn eftir snyrtilegan. Ef þið óskið eftir því þá getum við líka verið með þjón í sal til þess að halda salnum snyrtilegum í gegnum kvöldið.
Hver viðburður er einstakur, svo við gerum tilboð fyrir hvern og einn fyrir sig. Verðlagning fer meðal annars eftir:
- Fjöldi gesta
- Lengd viðburðar
- Drykkjarval
- Staðsetning
Sendu okkur upplýsingar um viðburðinn þinn og við setjum saman sérsniðið tilboð.
Já, algjörlega. Við hönnum saman kokteilseðilinn út frá viðburðinum — þemanu, óskum gesta, litapallettunni og heildarstemningunni. Engar staðlaðar pakkalausnir, við pössum upp á að þjónustan okkar sé sniðin að tilefninu.
Að sjálfsögðu! Flestir kokteilarnir okkar eru einnig í boði óáfengir og við pössum alltaf upp á að vera með eitthvað fyrir alla sama hvort það sé áfengt eða ekki.
Við sérhæfum okkur í kokteilum og barþjónustu. Að því sögðu erum við ánægð að mæla með frábærum veisluþjónustuaðilum ef viðburðurinn þinn þarfnast matar.
Námskeiðin okkar eru skemmtileg upplifun þar sem hver og einn fær að hrista sinn eigin kokteil. Þátttakendur læra að hræra og blanda kokteila, læra á áhöldin sem barþjónar nota, hvernig er best að gera kokteila heima en mest af öllu snýst þetta um að hafa gaman saman! Hver einstaklingur gerir venjulega 3 mismunandi kokteila í námskeiðinu.
Frábært fyrir teymisuppbyggingu fyrirtækja, gæsapartý og einkahópa.
Námskeiðin virka best fyrir 8–20 þátttakendur. Minni hópar geta verið mögulegir, allt eftir uppsetningu.
Fyrir stærri hópa — upp að 100 manns — hikaðu ekki við að hafa samband og við setjum saman tilboð fyrir þig.